dcsimg

Svartþröstur ( 冰島語 )

由wikipedia IS提供

Svartþröstur (fræðiheiti: Turdus merula) er þrastartegund sem er algeng um alla Evrópu og Asíu sunnan norðurheimskautsbaugs. Svartþröstur er afar algengur víða í Evrópu en nýlegur landnemi á Íslandi. Hér verpir hann meðal annars á innnesjum svo sem í Reykjavík og er talið að varpstofn hans á höfuðborgarsvæðinu sé á bilinu 60 til 100 pör. Hann er meðal annars nokkuð algengur í Laugardalnum og má sjá hann þar allan ársins hring.

Karlfuglinn er alsvartur og eftir fyrsta veturinn með gulan eða appelsínugulan gogg og áberandi gulan hring í kringum augun, en kvenfuglinn er brúnmóleitur með fölgulan gogg. Svartþröstur er litlu stærri en skógarþröstur. Svartþrestir eru á bilinu 23 – 29 cm á lengd og vega um 125 grömm.[1]

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tilvísanir

  1. Verpa svartþrestir á Íslandi? Vísindavefur. Skoðað 18. janúar, 2016.
許可
cc-by-sa-3.0
版權
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
原始內容
參訪來源
合作夥伴網站
wikipedia IS

Svartþröstur: Brief Summary ( 冰島語 )

由wikipedia IS提供

Svartþröstur (fræðiheiti: Turdus merula) er þrastartegund sem er algeng um alla Evrópu og Asíu sunnan norðurheimskautsbaugs. Svartþröstur er afar algengur víða í Evrópu en nýlegur landnemi á Íslandi. Hér verpir hann meðal annars á innnesjum svo sem í Reykjavík og er talið að varpstofn hans á höfuðborgarsvæðinu sé á bilinu 60 til 100 pör. Hann er meðal annars nokkuð algengur í Laugardalnum og má sjá hann þar allan ársins hring.

Karlfuglinn er alsvartur og eftir fyrsta veturinn með gulan eða appelsínugulan gogg og áberandi gulan hring í kringum augun, en kvenfuglinn er brúnmóleitur með fölgulan gogg. Svartþröstur er litlu stærri en skógarþröstur. Svartþrestir eru á bilinu 23 – 29 cm á lengd og vega um 125 grömm.

 src= Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist svartþröstum  src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
許可
cc-by-sa-3.0
版權
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
原始內容
參訪來源
合作夥伴網站
wikipedia IS