dcsimg

Mörgæsir ( 冰島語 )

由wikipedia IS提供

Mörgæsir (fræðiheiti: Sphenisciformes) er ættbálkur ófleygra fugla. Til eru sautján tegundir af mörgæsum. Mörgæsir eru ófleygar og lifa flestar í svalari hluta Suður-Íshafsins. Skrokkurinn er svartur á baki og hvítur að framan og þær hafa stutta en sterka fætur aftarlega á skrokknum. Talið er að mörgæsir eyði allt að þremur fjórðu hlutum ævi sinnar í sjó enda eru þær miklir sundgarpar. Mörgæsir eru kjötætur og fæða þeirra er aðalega lítil sjávardýr.

Stærsta mörgæsin er keisaramörgæs en þær geta orðið allt að 21-40 kg og um 120 cm. á hæð. En sú minnsta er dvergmörgæs, þær vega aðeins 1-1,8 kg og eru minni en sumar endur.

Tegundir

Af hverju geta mörgæsir ekki flogið

Mörgæsir eru komnar af fleygum fuglum en geta þrátt fyrir það ekki flogið. Tvennt er sem veldur því að þær geta ekki flogið en það er að þær eru of þunga og vængirnir eru of stuttir miðað við líkamsstærð. Vængirnir minna frekar á hreifa en vængi, enda hafa þeir aðlagast sundi og mörgæsir eru afbragðs sunddýr og komast mjög hratt yfir. Það finnast fleiri fuglar en mörgæsir sem geta ekki flogið, má þar nefna strút, móa og emúa. En þær eins og mörgæsin hafa aðlagast landlífinu [1].

 src=
Gentoomörgæs á sundi

Tilvísanir

  1. JGÞ og MBS. „Af hverju geta mörgæsir ekki flogið“. Sótt 9. apríl 2013.

Heimildir

許可
cc-by-sa-3.0
版權
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
原始內容
參訪來源
合作夥伴網站
wikipedia IS

Mörgæsir: Brief Summary ( 冰島語 )