dcsimg

Elri ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Elri [1] eða ölur (fræðiheiti: Alnus) er ættkvísl blómplantna af birkiætt (Betulaceae). Í ættkvíslinni eru um 30 tegundir af trjám og runnum. Elri hefur aðallega útbreiðslu á norðurhveli en til eru elritegundir við Andesfjöll og í Suður-Asíu.

Orðsifjar

Nafnið elri eða ölur er af er upprunnið úr forngermönsku rótinni[2] aliso og aluz. Ættkvíslarheitið Alnus er gamalt latneskt heiti yfir elri. Bæði latínuheitið og germanska heitið koma úr frum-indóevrópsku rótinni el-, í merkingunni "rauður" eða "brúnn", sem er einnig er rótin fyrir orðin elgur og álmur.[3]

Á Íslandi

Elri hefur verið notað sem landgræðsluplanta á Íslandi. Það býr til næringarefnið nitur með hjálp rótargerla við ræturnar.

Tegundir sem reyndar hafa verið á Íslandi eru m.a. :

  • Gráelri (Alnus incana): Evrópsk tegund sem vex allt að norður-Noregi. Einstofna tré með breiða krónu.
  • Blæelri (Alnus incana subsp. tenuifolia): Norður-amerísk undirtegund gráelris.
  • Sitkaelri (Alnus viridis subsp. sinuata): Runnkennt og margstofna tré, ættað frá vesturströnd Ameríku.
  • Svartelri/Rauðelri (Alnus glutinosa): Evrópsk tegund
  • Ryðelri (Alnus rubra)[4]: Norður-amerísk tegund. Stórvaxnasta elritegundin. Verður allt að 20-30 metra hátt tré.
 src=
Reklar á elri í maí 2008 í Grasagarði Reykjavíkur.
 src=
Gráelri í Grasagarði Reykjavíkur

Þessar tegundir þrífast vel á Íslandi og á rýru land. Þær þrífast samt best þar sem grunnvatn stendur hátt. Á mjög þurrum melum eiga þær oft erfitt fyrstu árin.[5]

Flokkun

Ættkvíslin skiptist í þrjár undirættkvíslir (subgenera):

Subgenus Alnus:

 src=
Blöð á Alnus incana subsp. rugosa
  • Alnus rhombifolia Nutt. — Bandaríkin (Kalifornía, Nevada, Oregon, Washington, Idaho, Montana)
  • Alnus rubra Bong. — Ryðölur - N-Ameríka (Alaska, Yukon, Breska Kólumbía, Kalifornía, Oregon, Washington, Idaho, Montana.)
  • Alnus serrulata (Aiton) Willd. — Sagölur - austur N-Ameríka
 src=
Blöð á Alnus serrulata

Subgenus Clethropsis.

Subgenus Alnobetula.

 src=
Grænelri (Alnus viridis)
Óvíst með undirætt

Blendingar

Tilvísanir

  1. Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
  2. http://www.etymonline.com/index.php?term=alder&allowed_in_frame=0
  3. http://www.etymonline.com/index.php?term=elk&allowed_in_frame=0
  4. Elritegundir Skógrækt ríkisins. Skoðað 18. janúar, 2016.
  5. Elri gæti komið í stað lúpínu. Vísir. Skoðað 27. maí, 2016.
Wikilífverur eru með efni sem tengist
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Elri: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Elri eða ölur (fræðiheiti: Alnus) er ættkvísl blómplantna af birkiætt (Betulaceae). Í ættkvíslinni eru um 30 tegundir af trjám og runnum. Elri hefur aðallega útbreiðslu á norðurhveli en til eru elritegundir við Andesfjöll og í Suður-Asíu.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS