dcsimg

Fjallareynir ( Islandês )

fornecido por wikipedia IS

Fjallareynir (fræðiheiti Sorbus commixta) er tegund trjáa í Rósaætt, upprunnin frá Japan, Sakhalin, og Kóresku eyjunni Ulleungdo.[2][3][4]

Orðsifjar

Seinni hluti fræðiheitisins; commixta þýðir blandað eða flækt saman.[5]

Japanska heitið, 七竈 (nanakamado, ナナカマド), þýðir bókstaflega "sjö (sinnum í) arininn" og vísar til eiginleika hans sem eldiviðar, þar sem hann brennur ekki alveg upp í arineldi jafnvel eftir endurtekna notkun.[6]

Lýsing

Fjallareynir er smátt til meðalstórt tré sem verður 7 - 10 m hátt, sjaldan 18 m, með ávalri krónu. Börkur er brúnleitur á ungum greinum og verður silfurgrár með aldrinum. Blöðin eru fjöðruð, 20 - 30 sm löng. Blöðin samanstanda af 11-17 smáblöðum, hvert 4 - 7sm langt og 1 - 2,5 sm breitt, sagtennt; Þau verða rauð til purpuralit að haust. Blómin eru 6–10 mm að þvermáli; þau eru í hálfsveip sem er 9 - 15 sm að þvermáli. Berin að hausti eru skær rauðgul til rauð, 7 - 8 mm að þvermáli.[3][4][7]

Plöntur frá Hokkaidō, Kúrileyjum og Sakalínfylki eru stundum taldar sér undirtegund: Sorbus commixta var. sachalinensis, með stærri smáblöðum; að 9 sm löng.[4]

Ræktun

Hann er lítið þekktur á Íslandi en hefur reynst vel í Grasagörðunum.[8] Tré í Danmörku eru jafnan ágrædd á Sorbus aucuparia.[9]

Tilvísanir

  1. McAllister, H.A. 2005. The genus Sorbus: Mountain Ash and other Rowans . Kew Publishing.
  2. Germplasm Resources Information Network: Sorbus commixta.
  3. 3,0 3,1 Okayama University of Science: Sorbus commixta (in Japanese; google translation)
  4. 4,0 4,1 4,2 Rushforth, K. (1999). Trees of Britain and Europe. Collins ISBN 0-00-220013-9.
  5. Harrison, Lorraine (2012). RHS Latin for gardeners. United Kingdom: Mitchell Beazley. bls. 224. ISBN 9781845337315.
  6. Kodansha Encyclopedia of Japan. Kodansha. 1983. bls. 327. ISBN 978-0-87011-625-4. The wood is hard and the tree's name derives from the saying that even after putting it into a stove (kamado) seven (nana) times, it remains unburned.
  7. Kanagawa Plants: Sorbus commixta (in Japanese; google translation)
  8. Auður I. Ottesen (2006). Lauftré á Íslandi. Sumarhúsið og garðurinn. bls. 98. ISBN 9979-70-025-4.
  9. https://da.wikipedia.org/wiki/Japansk_R%C3%B8n
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
licença
cc-by-sa-3.0
direitos autorais
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visite a fonte
site do parceiro
wikipedia IS

Fjallareynir: Brief Summary ( Islandês )

fornecido por wikipedia IS

Fjallareynir (fræðiheiti Sorbus commixta) er tegund trjáa í Rósaætt, upprunnin frá Japan, Sakhalin, og Kóresku eyjunni Ulleungdo.

licença
cc-by-sa-3.0
direitos autorais
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visite a fonte
site do parceiro
wikipedia IS

Japansreynir ( Islandês )

fornecido por wikipedia IS

Japansreynir (Sorbus japonica) er reynitegund ættuð frá Japan.

Tilvísanir

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
licença
cc-by-sa-3.0
direitos autorais
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visite a fonte
site do parceiro
wikipedia IS

Japansreynir: Brief Summary ( Islandês )

fornecido por wikipedia IS

Japansreynir (Sorbus japonica) er reynitegund ættuð frá Japan.

licença
cc-by-sa-3.0
direitos autorais
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visite a fonte
site do parceiro
wikipedia IS