dcsimg

Spendýr ( исландски )

добавил wikipedia IS

Spendýr (fræðiheiti: Mammalia) eru flokkur seildýra í undirfylkingu hryggdýra sem einkennist af því að vera með mjólkurkirtla, sem kvendýrin nota til að framleiða mjólk til að næra ungviði; feld eða hár og innverminn líkama (heitt blóð). Heilinn stýrir blóðrásarkerfinu, þar á meðal hjarta með fjögur hólf. Um 5.500 tegundir spendýra eru þekktar og skiptast þær í um 1.200 ættkvíslir, 152 ættir og 46 ættbálka.

Eiginleikar

Flest spendýr fæða lifandi afkvæmi, en tegundir af undirflokki nefdýra verpa eggjum. Þó svo væri ekki væri þessi eiginleiki ekki einkennandi fyrir flokkinn því ýmis önnur hryggdýr, eins og t.d. gúbbífiskar og sleggjuháfar, fæða einnig lifandi afkvæmi.

Kvendýr af flokki spendýra eru öll með mjólkurkirtla en ekki öll með spena (eða geirvörtur). Aftur hefur nefdýraundirflokkurinn þar sérstöðu en kvendýr af þeim flokki eru með holur á kviðnum sem mjólkin seitlar út um í stað spena.

Heilar allra spendýra eru með nýbörk, en hann er einkennandi fyrir flokkinn.

Flest spendýr eru landdýr, en sum þ.á m. sækýr og hvalir, lifa í vatni.

лиценца
cc-by-sa-3.0
авторски права
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
изворно
посети извор
соработничко мреж. место
wikipedia IS

Spendýr: Brief Summary ( исландски )