Birkimerla (fræðiheiti: Caloplaca borealis) er hrúðurflétta af glæðuætt (Teloschistaceae). Hún vex á trjáberki. Á Íslandi hefur hún aðeins fundist á örfáum stöðum, alltaf á berki birkitrjáa.[2] Birkimerla finnst í Botnsskógi í Dýrafirði.[3]
Þal birkimerlu er reitaskipt og vörtótt þar sem vörturnar litast gular vegna parietíns en þalið milli reitanna er hvítleitt eða grátt.[2]
Birkimerla inniheldur fléttuefnið parietín sem litar fléttuna gula eða appelsínugula. Þalsvörun birkimerlu við efnalitun er K neivæð (K-) en askhirlsurnar litast K+ rauðar.[2]
Birkimerla er á válista Náttúrufræðistofnunar Íslands sem tegund í yfirvofandi hættu (VU).[1] Ástand birkimerlu hefur ekki enn verið metið af IUCN.
Birkimerla (fræðiheiti: Caloplaca borealis) er hrúðurflétta af glæðuætt (Teloschistaceae). Hún vex á trjáberki. Á Íslandi hefur hún aðeins fundist á örfáum stöðum, alltaf á berki birkitrjáa. Birkimerla finnst í Botnsskógi í Dýrafirði.