Japanshlynur (fræðiheiti: Acer palmatum) er lauffellandi trjátegund og hlynur sem oftast nær 6-10 m hæð. Upprunalega heimkynni japanshlyns eru Japan, Norður-Kórea, Austur-Mongólía og suðaustur-Rússland. Í ræktun eru fjölmörg afbrigði af japanshlyn en þau eru vinsæl garðtré vegna forms, lögunar laufblaða og litfegurðar.