dcsimg

Heiðlóa ( İzlandaca )

wikipedia IS tarafından sağlandı
Sjá má aðgreiningarsíðurnar fyrir aðrar merkingar heiðlóu og lóu.

Heiðlóa (fræðiheiti: pluvialis apricaria) einnig oft kölluð bara lóa er stór fugl af lóuætt. Hún er mófugl og farfugl á Íslandi. Kemur í lok mars eða byrjun apríl til Íslands en hefur vetursetu á Bretlandseyjum og suður þaðan með ströndum Vestur-Evrópu allt til Gíbraltar og Norður-Afríku. Heiðlóan er alfriðuð á Íslandi.

Einkenni

Lengd: 28 cm. | Þyngd: 200 gr. | Vænghaf: 67 – 76 cm.

Að ofan er hún dökk með gulum dílum, en svört að neðan og á vöngum, á milli þess er breið hvít s-laga rönd. Bæði kynin eru nánast eins eins að lit.

Lifnaðarhættir

 src=
Egg Heiðlóunnar

Lóan lifir aðallega á ánamöðkum, mýflugum, skordýralirfum og sniglum. Á sumrin nærist hún einnig á jurtafæðu, t.d. berjum.

Fyrst er lóan kemur til landsins dvelur hún meðfram ströndum en leitar svo að varpstöðum í móum, mýrum eða heiðum. Hreiðurgerð er ekki mikil hjá henni, aðeins laut í lyngmóa eða grasi útbúið með grasstráum eða laufblöðum. Varp hefst seinni hluta maí og verpir hún oftast fjórum eggjum sem eru grágul eða mógul með mósvörtum dílum á litin. Eftir um það bil 3 vikur brjótast ungarnir út. Báðir foreldrarnir taka þátt í að liggja á egginu. Í lok júlí flýgur hún með ungana aftur suður til vetrardvalar og flýgur lóan þá í hópum.

Vorboðinn

Fólk á Íslandi segir oft að heiðlóan sé merki þess að vor og sumar sé á næsta leiti og hefur heiðlóan orðið tákn fyrir vorið og kölluð vorboðinn. Sagt er að hún sé veðurglögg og reyna sumir að lesa út úr veðrinu eftir hegðun hennar og sér hennar ósjaldan stað í skáldskap og þjóðtrú. Eitt þekktasta ljóð sem samið hefur verið á Íslandi um heiðlóuna er ljóð Páls Ólafssonar, Lóan er komin að kveða burt snjóinn, sem lýsir þessu viðhorfi ágætlega.

Tilvísanir

  1. BirdLife International (2012). Pluvialis apricaria. IUCN Red List of Threatened Species. Version 2012.1. International Union for Conservation of Nature. Sótt 16. júlí 2012.

lisans
cc-by-sa-3.0
telif hakkı
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
orijinal
kaynağı ziyaret et
ortak site
wikipedia IS

Heiðlóa: Brief Summary ( İzlandaca )

wikipedia IS tarafından sağlandı
Sjá má aðgreiningarsíðurnar fyrir aðrar merkingar heiðlóu og lóu.

Heiðlóa (fræðiheiti: pluvialis apricaria) einnig oft kölluð bara lóa er stór fugl af lóuætt. Hún er mófugl og farfugl á Íslandi. Kemur í lok mars eða byrjun apríl til Íslands en hefur vetursetu á Bretlandseyjum og suður þaðan með ströndum Vestur-Evrópu allt til Gíbraltar og Norður-Afríku. Heiðlóan er alfriðuð á Íslandi.

lisans
cc-by-sa-3.0
telif hakkı
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
orijinal
kaynağı ziyaret et
ortak site
wikipedia IS