Konungskóbra (fræðiheiti: Ophiophagus hannah) er kóbra og stærsta eiturslanga í heimi. Hún getur orðið allt að 6 metrum á lengd, vegið allt að 13 kílóum og lifað í um 20 ár.
Konungskóbran lifir helst í regnskógum eða á svæðum þar sem er skóglendi og mikið regn. Þær er aðallega að finna á sléttum í Indlandi, Suður-Kína og Suðaustur-Asíu. Kóbrurnar kunna vel við sig uppi í trjám en einnig í vatni og uppi á landi.
Húðin er annaðhvort ólífugræn, brún eða svört. Gul krossbönd koma niður líkamann. Maginn er rjómagulur og er sléttur og mjúkur. Karlkyns kóbran er gildari og stærri en kvenkyns kóbran.
Konungskóbrurnar lifa aðallega á öðrum slöngum, bæði eitruðum og óeitruðum. Einnig éta þær eðlur, egg og minni spendýr.
Konungskóbra (fræðiheiti: Ophiophagus hannah) er kóbra og stærsta eiturslanga í heimi. Hún getur orðið allt að 6 metrum á lengd, vegið allt að 13 kílóum og lifað í um 20 ár.