Tröllatré (fræðiheiti: Eucalyptus,[1] L'Héritier 1789)[2] er stór ættkvísl runna og trjáa í myrtu ætt, Myrtaceae. Þessi ættkvísl er ríkjandi í Ástralíu og einungis 9 tegundir ættkvíslarinnar vaxa ekki þar. Það eru yfir 700 tegundir af Eucalyptus og aðeins 15 sem finnast náttúrulega utan Ástralíu; í Nýju-Guíneu og Indónesíu. Ein tegund, Eucalyptus deglupta, vex norður til Filippseyja.
Nær allar tegundir af eucalyptus eru sígrænar, en sumar hitabeltistegundirnar missa blöðin við lok þurrkatímabilsins. Eins og hjá öðrum tegundum myrtu ættar, eru Eucalyptus blöð þakin olíukirtlum.
Blöðin á fullvöxnum Eucalyptustrjám eru oftast lensulaga, stakstæð og vaxkennd eða gljáandi græn. Aftur á móti eru blöðin á smáplöntum gagnstæð og bládöggvuð, en margar undantekningar þekkjast.
Lítil ættkvísl af líkum trjám, Angophora, hefur einnig verið þekkt síðan á 18du öld. Erfðafræðirannsóknir og aðrar greiningar bentu árið 1995 til að nokkrar þekktar eucalyptus tegundir væru í raun skyldari Angophora en öðrum Eucalyptus; þær voru settar í eigin ættkvísl: Corymbia. Þrátt fyrir að vera aðskildar, eru þessir þrír hópar tengdir og er þessar þrjár ættkvíslir, Angophora, Corymbia og Eucalyptus, saman nefndar "eucalypts".
Nokkrar eucalyptus tegundir eru meðal hæstu tegunda heims. Eucalyptus regnans, er hæst allra blómstrandi plantna (angiosperms); hæsta eintakið er Centurion er 99,6m hátt.[3][4] Degli er jafnhátt, aðeins Sequoia sempervirens er hærri, og þau eru barrtré (gymnosperm). Sex aðrar eucalyptus tegundir ná yfir 80 metrum á hæð: Eucalyptus obliqua, Eucalyptus delegatensis, Eucalyptus diversicolor, Eucalyptus nitens, Eucalyptus globulus og Eucalyptus viminalis.
Yfirleitt þolir eucalyptus ekki mikinn kulda. Þó að víða þar sem eucalyptus vex kemur vægt frost, þá þola þau yfirleitt ekki að hitinn fari niður fyrir -5°C;[5][6][7] harðgerðasta tegundin er Eucalyptus pauciflora, sem getur þolað að hitinn fari niður í -20°C. Tvær undirtegundir, E. pauciflora subsp. niphophila og E. pauciflora subsp. debeuzevillei er enn harðgerðari og geta þolað nokkuð harða vetur. Nokkrar aðrar tegundir, sérstaklega frá hásléttum og fjöllum mið Tasmaníu svo sem Eucalyptus coccifera, Eucalyptus subcrenulata og Eucalyptus gunnii,[8] hafa myndað sérstaklega harðgerðar gerðir og fræ sem er safnað af þessum kuldaþolnu gerðum eru ræktuð sem skrautplöntur á kaldari svæðum heimsins.
Eucalyptus sideroxylon, greinar, blöð og fræbelgir.
Eucalyptus bridgesiana við Red Hill (Australian Capital Territory).
Eucalyptus gunnii útplöntun í suður Englandi. Neðrihluti stofnsins er þakinn bergfléttu.
Eucalyptus cinerea x pulverulenta - National Botanical Gardens Canberra
A snow gum (E. pauciflora), að vetri í Áströlsku Ölpunum
Eucalyptus saligna vestur af Port Macquarie, New South Wales
Eucalyptus regnans tré í Sherbrooke Forest, Victoria (Ástralíu)
vol. 1. South-eastern Australia.
Tröllatré (fræðiheiti: Eucalyptus, L'Héritier 1789) er stór ættkvísl runna og trjáa í myrtu ætt, Myrtaceae. Þessi ættkvísl er ríkjandi í Ástralíu og einungis 9 tegundir ættkvíslarinnar vaxa ekki þar. Það eru yfir 700 tegundir af Eucalyptus og aðeins 15 sem finnast náttúrulega utan Ástralíu; í Nýju-Guíneu og Indónesíu. Ein tegund, Eucalyptus deglupta, vex norður til Filippseyja.