dcsimg

Risaeðlur ( Islandês )

fornecido por wikipedia IS

Risaeðlur (fræðiheiti Dinosauria) voru hryggdýr sem drottnuðu yfir landrænu vistkerfi Jarðar í meira en 160 milljónir ára. Þær komu fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um 230 milljónum ára. Í lok Krítartímabilsins, fyrir 65 milljónum ára. varð hamfaraatburður sem olli útdauða þeirra og þar með endalokum yfirráða þeirra á landi. Fuglar nútímans eru taldir beinir afkomendur risaeðlanna.

Allt frá því að leifar fyrstu risaeðlunnar fundust á 19. öld hafa steingerðar beinagrindur þeirra dregið að sér mikla athygli á söfnum um víða veröld. Risaeðlur eru orðnar nokkurs konar hluti af heimsmenningunni og ekkert lát virðist á vinsældum þeirra, sér í lagi á meðal barna. Fjallað hefur verið um þær í metsölubókum og kvikmyndum á borð við Jurassic Park (Júragarðurinn), og nýjustu uppgötvanir um risaeðlur birtast reglulega í fjölmiðlum.

Orðið dinosaur er einnig notað óformlega til að lýsa hvers kyns forsögulegum skriðdýrum eins og pelycosaur Dimetrodon, hinum vængjaða pterosaur, og vatnaskriðdýrunum ichthyosaur, plesiosaur og mosasaur, þrátt fyrir að engin þeirra séu í raun risaeðlur.

Tengt efni

licença
cc-by-sa-3.0
direitos autorais
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visite a fonte
site do parceiro
wikipedia IS

Risaeðlur: Brief Summary ( Islandês )