dcsimg

Slíðurhyrningar ( Islandèis )

fornì da wikipedia IS

Slíðurhyrningar eru ætt klaufdýra sem finna má víðs vegar um heiminn, frá Ástralíu til Norðurheimskautsins. Slíðurhyrningar telja bæði villt dýr og húsdýr. Helstu tegundirnar eru bufflar, nautgripir, sauðfé, antilópur og geitur.

Stærstu slíðurhyrningarnir eru meira en tvö tonn að þyngd og meira en tveir metrar á herðakambinn en þeir minnstu eru alveg niður í þrjú kílógrömm og varla stærri en venjulegir heimiliskettir. Þeir eiga það sameiginlegt að vera jurtaætur en geta ekki melt beðmi heldur jórtra og nýta sér margar tegundir örvera í meltingarfærum sínum sem brjóta það niður.

 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
licensa
cc-by-sa-3.0
drit d'autor
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visité la sorgiss
sit compagn
wikipedia IS