Norðursnjáldri (fræðiheiti: Mesoplodon bidens), einnig svínhvalur, er meðalstór tannhvalur af svínhvalaættinni sem finnst í Norður-Atlantshafinu og við Ísland.
Norðsnjáldri er 5 til 5,5 metrar á lengd og allt að 1,5 tonn á þyngd. Hausinn er fremur lítill og frammjór og undir honum eru tvær húðfellingar sem liggja samsíða kjálkabeinunum. Trýnið er meðallangt og ekki afmarkað frá enninu. Oftast eru dýrin grá á lit, dekkri á baki en á kviði. Hornið er fremur lítið og aftan við mitt bak. Bægslin eru lítil en þó hlutfallslega stærri en á öðrum svínhvölum.
Það sérkennilegasta við norðursnjáldra og aðra svínhvali er að dýrið hefur bara eitt par af tönnum. Kýr norðursnjáldra eru þó tannlausar. Tennur tarfanna eru framan við miðju kjálkabeinsins.
Norðursnjáldri hefur einungis fundist í Norður-Atlantshafi og er bundinn við úthafið. Í hvalatalningum Hafrannsóknastofnunnar við Ísland hefur tegundin einungis fundist sunnan við landið.[1]
Lítið er vitað um fæðu norðursnjáldra, en sennilegast lifa þeir jöfnum höndum á fiski og smokkfiski.
Oftast halda dýrin sig í minni hópum 2 til 3 dýr en hafa sést í hópum með allt að 15 dýrum.
Afar lítið er vitað um útbreiðslu og fjölda norðursnjáldra og byggir tegundalýsing á rannsóknum á örfáum dýrum.
Norðursnjáldri (fræðiheiti: Mesoplodon bidens), einnig svínhvalur, er meðalstór tannhvalur af svínhvalaættinni sem finnst í Norður-Atlantshafinu og við Ísland.