Fritillaria persica er blómstrandi planta af liljuætt, ættuð frá suður Tyrklandi, Íran, Írak, Líbanon, Sýrlandi, Palestínu og Ísrael.[1][2] Hún er víða ræktuð sem skrautplanta og er orðin slæðingur í Lazio héraði í Ítalíu.[3]
Fritillaria persica er fjölær laukplanta sem verður 30 - 60 sm á hæð. Hver planta ber allt að 30, keilu eða bjöllulaga blóm, um 2 sm löng, með lit frá dökk-fjólubláum yfir í gulgræn.[4][5]
Fritillaria persica þarf svipaða meðhöndlun og keisarakróna. Algengt afbrigði er 'Adiyaman', sem er hærra og blómviljugara heldur en villiplöntur af upprunasvæðinu.[5]Það er með dökkfjólubláum blómum.
Fritillaria persica er blómstrandi planta af liljuætt, ættuð frá suður Tyrklandi, Íran, Írak, Líbanon, Sýrlandi, Palestínu og Ísrael. Hún er víða ræktuð sem skrautplanta og er orðin slæðingur í Lazio héraði í Ítalíu.