Þrílaufungur (fræðiheiti Gymnocarpium dryopteris[1] er burkni af ættinni Cystopteridaceae. Hann er algengur um mesta Norður Ameríku og Evrasíu. Hann hefur fundist í Kanada, Bandaríkjunum, Grænlandi, Kína, Japan, Kóreu, Rússlandi og mestallri Evrópu. [2][3][4][5]
Gymnocarpium dryopteris er með smáum, fíngerðum blaðstilkum að 40 sm löngum, með tví- eða þrí- fjöðruð. Blöðin koma stök upp. Neðan á þroskuðum blöðkunum sjást kringlóttir gróblettirnir, án gróhulu. Tegundin vex í barrskógum og í skriðum.[2]
Litningatalan er 2n = 160.[6] Gymnocarpium dryopteris, er undirgróður í skógum, þó ekki með eik (Quercus).[7][8]
Á Íslandi hafa fundist tvær tegundir ryðsveppa sem sýkja þrílaufung. Þær eru Hyalopsora aspidiotus og Herpobasidium filicinum.[9]
Þrílaufungur (fræðiheiti Gymnocarpium dryopteris er burkni af ættinni Cystopteridaceae. Hann er algengur um mesta Norður Ameríku og Evrasíu. Hann hefur fundist í Kanada, Bandaríkjunum, Grænlandi, Kína, Japan, Kóreu, Rússlandi og mestallri Evrópu.