dcsimg
Populus balsamifera subsp. trichocarpa (Torr. & Gray) Brayshaw resmi
Life » » Archaeplastida » » Angiosperms » » Söğütgiller »

Populus balsamifera subsp. trichocarpa (Torr. & Gray) Brayshaw

Alaskaösp ( İzlandaca )

wikipedia IS tarafından sağlandı

Alaskaösp (fræðiheiti: Populus trichocarpa) er lauftré af asparættkvísl (Populus) og víðisætt (Salicaceae). Heimkynni alaskaaspar er vesturströnd Norður-Ameríku; sunnan frá Kaliforníu norður til Kenaiskaga og Kodiakeyju í Alaska.

Alaskaöspin er með stórvöxnustu aspartegundum og nær venjulega um og yfir 30 m. Á stöðum eins og í Oregon- og Washington-fylki í Bandaríkjunum verður hún allt að 60 metra há. [1] Ársvöxtur getur orðið allt að 1 metri á ári, og greinar vaxa 40-60 cm. ári. Tegundin kýs sér helst frjóan jarðveg með ferskan jarðarka. Alaskaöspin er ekki langlíf og er talið að hún verði yfirleitt ekki eldri en 100 ára. Alaskaöspin myndar einnig mikið af rótarskotum sem koma upp í nokkurra metra fjarlægð frá móðurplöntunni.

Laufblöðin eru egglaga. Börkur er ljósgrár eða gulgrár á ungum trjám en dökkgrár á eldri trjám. Af brumum alaskaaspar leggur sterkan balsamilm. Haustlitir alaskaaspar eru gulir. Öspin er afar fjölbreytileg að útliti og vaxtarlagi eftir kvæmum og klónum.

Á Íslandi

Alaskaösp var fengin til Íslands frá Alaska árið 1943 eða 1944 og var fyrst reynd sem garðtré. Elstu eintökin má finna í Múlakoti í Fljótshlíð. Tegundin er meðal hæstu trjáa á Íslandi og hefur náð tæpum 26 metrum á hæð[2]. Fram undir 1999 var hún fyrst og fremst ræktuð sem garðtré en eftir það er farið að nota hana í stórum stíl í skógrækt og skjólbeltagerð. Þó að ræktun alaskaasparinnar hafi gengið vel hér á landi virðast mjög vindasamir staðir við sjávarsíðuna og votar mýrar henta henni ákaflega illa. Hérlendis eru einkum notuð kvæmi frá Kenai skaga og Prince Williams flóa í Alaska[3]

Árin 2013 og 2016 hefur alaskaösp verið valin tré ársins af Skógræktarfélagi Íslands.

Heimildir

  1. Getið þið sagt mér allt sem þið vitið um aspir? Vísindavefur. Skoðað 3. febrúar 2016.
  2. Íslandsmeistari trjáa ver titil sinn Skógrækt ríkisins. Skoðað 15 ágúst, 2016.
  3. Alaskaösp Skjólskógar. Skoðað 15. ágúst 2016.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
lisans
cc-by-sa-3.0
telif hakkı
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
orijinal
kaynağı ziyaret et
ortak site
wikipedia IS

Alaskaösp: Brief Summary ( İzlandaca )

wikipedia IS tarafından sağlandı

Alaskaösp (fræðiheiti: Populus trichocarpa) er lauftré af asparættkvísl (Populus) og víðisætt (Salicaceae). Heimkynni alaskaaspar er vesturströnd Norður-Ameríku; sunnan frá Kaliforníu norður til Kenaiskaga og Kodiakeyju í Alaska.

Alaskaöspin er með stórvöxnustu aspartegundum og nær venjulega um og yfir 30 m. Á stöðum eins og í Oregon- og Washington-fylki í Bandaríkjunum verður hún allt að 60 metra há. Ársvöxtur getur orðið allt að 1 metri á ári, og greinar vaxa 40-60 cm. ári. Tegundin kýs sér helst frjóan jarðveg með ferskan jarðarka. Alaskaöspin er ekki langlíf og er talið að hún verði yfirleitt ekki eldri en 100 ára. Alaskaöspin myndar einnig mikið af rótarskotum sem koma upp í nokkurra metra fjarlægð frá móðurplöntunni.

Laufblöðin eru egglaga. Börkur er ljósgrár eða gulgrár á ungum trjám en dökkgrár á eldri trjám. Af brumum alaskaaspar leggur sterkan balsamilm. Haustlitir alaskaaspar eru gulir. Öspin er afar fjölbreytileg að útliti og vaxtarlagi eftir kvæmum og klónum.

lisans
cc-by-sa-3.0
telif hakkı
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
orijinal
kaynağı ziyaret et
ortak site
wikipedia IS