Giljaflækja (fræðiheiti: Vicia sepium) er fjölær háplanta af ertublómaætt. Hún vex í graslendi í tiltölulega snauðum jarðvegi og hengir sig á aðrar jurtir. Hún verður 30-50 sm há. Blöðin skiptast í fjögur til átta smáblöð á stöngli með vafþráðum. Hún blómstrar frá júlí til ágúst tveimur til fimm blómum sem eru blá eða fjólublá að lit. Fræhirslurnar eru langir belgir sem hver inniheldur þrjú til tíu fræ.
Giljaflækja er fremur sjaldséð á Íslandi og finnst aðallega á suður- og suðvesturlandi, undir Eyjafjöllum og í Vestmannaeyjum. Giljaflækja er ræktuð á undan hveiti á ökrum í Kína.[1]
Giljaflækja (fræðiheiti: Vicia sepium) er fjölær háplanta af ertublómaætt. Hún vex í graslendi í tiltölulega snauðum jarðvegi og hengir sig á aðrar jurtir. Hún verður 30-50 sm há. Blöðin skiptast í fjögur til átta smáblöð á stöngli með vafþráðum. Hún blómstrar frá júlí til ágúst tveimur til fimm blómum sem eru blá eða fjólublá að lit. Fræhirslurnar eru langir belgir sem hver inniheldur þrjú til tíu fræ.
Giljaflækja er fremur sjaldséð á Íslandi og finnst aðallega á suður- og suðvesturlandi, undir Eyjafjöllum og í Vestmannaeyjum. Giljaflækja er ræktuð á undan hveiti á ökrum í Kína.