dcsimg
Image of Mexican Douglas-fir
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Douglas Fir

Pseudotsuga menziesii (Mirb.) Franco

Degli ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Degli (fræðiheiti: Pseudotsuga menziesii), einnig kallað döglingsviður eða douglas-greni, er barrtré upprunið frá vesturhluta Norður-Ameríku. Tréð er notað í timburiðnaði. Það getur orðið með hærri trjám heims eða um 123 metrar að hæð. [4]

Tvö afbrigði eru af degli:

  • Stranddegli (Pseudotsuga menziesii var. menziesii) sem vex frá Bresku-Kólumbíu og suður að Kaliforníu. Það er önnur hæsta tegund barrtrjáa í heiminum og getur orðið yfir 100 metra[5]
  • Fjalladegli (P. menziesii var. glauca) sem vex frá fjalllendi í Bresku-Kólumbíu að Mexíkó þar sem dreifing er strjál og jafnvel er það talið vera annað afbrigði.

Á Íslandi

Degli hefur vaxið vel í Hallormsstaðaskógi og náð 20 metrum en það er erfitt í ræktun á Íslandi. Við Bjarmastíg 13 á Akureyri stendur degli sem er yfir 10 metra hátt.[6] Degli vex við hærri sumarhita og lengri sumur en Ísland hefur að bjóða. [7] Það er viðkvæmt fyrir áföllum í æsku en áhugavert væri að reyna ræktun þess í auknum mæli undir skermi, sem kallað er. Þá eru litlar trjáplöntur gróðursettar í eldri skógi sem hlífir þeim við vor- og haustfrostum og öðrum áföllum í æsku.

Heimildir

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Degli: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Degli (fræðiheiti: Pseudotsuga menziesii), einnig kallað döglingsviður eða douglas-greni, er barrtré upprunið frá vesturhluta Norður-Ameríku. Tréð er notað í timburiðnaði. Það getur orðið með hærri trjám heims eða um 123 metrar að hæð.

Tvö afbrigði eru af degli:

Stranddegli (Pseudotsuga menziesii var. menziesii) sem vex frá Bresku-Kólumbíu og suður að Kaliforníu. Það er önnur hæsta tegund barrtrjáa í heiminum og getur orðið yfir 100 metra Fjalladegli (P. menziesii var. glauca) sem vex frá fjalllendi í Bresku-Kólumbíu að Mexíkó þar sem dreifing er strjál og jafnvel er það talið vera annað afbrigði.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS