Brúngreni, vísindaheiti Picea rubens, er tegund af greni ættuðu úr austurhluta Norður Ameríku, frá austur Quebec til Nova Scotia, og frá New England suður til Adirondack-fjöllum og Appalasíu-fjöllum til vestur Norður-Karólínu.[2][3][4]
Þessi tegund gengur undir fjölda nafna á ensku; red spruce, yellow spruce, West Virginia spruce, eastern spruce, og he-balsam (sjá Abies fraseri; "she-balsam").[5][6]
Brúngreni er sígrænt[7] shade-tolerant, late successional[8] barrtré sem verður við bestu aðstæður 18 til 40 metra hátt með stofnþvermál um 60 sm, þó geta einstaka tré náð 46 metra hæð og 1 meters þvermáli. Það er með mjókeilulaga krónu. Barrið er nálarlaga, gulgrænt, 12 til 15 mm langt, fjórhliða, sveigt, með hvössum oddi, og stendur út frá öllum hliðum greinarinnar. Börkurinn er grábrúnn að utan og rauðbrúnn að innan, þunnur og hreistraður. Viðurinn er léttur og mjúkur, með mjóum árhringjum, og er með lítilsháttar rauðum blæ.[9] Könglarnir eru sívalir, 3 til 5 sm langir, með gljáandi rauðbrúnum lit og stíft köngulhreistur.[2][3][4][10]
Brúngreni vex meðalhratt til hægt, lifir í 250 til 450+ ár, og er mjög skuggþolið ungt.[11] Það er oft í hreinum skógum ("stands") eða í bland við Pinus strobus, balsamþin, eða svartgreni.[12] Búsvæði þess er rakur en vel drenaður sendinn moldarjarðvegur, yfirleitt hátt yfir sjávarmáli. Brúngreni skaðast auðveldlega af vindkasti og súru regni.
Það er náskylt Svartgreni, og blendingar á milli þeirra eru algengir þar sem útbreiðslusvæði þeirra mætast.[2][3][4]
Brúngreni er notað sem jólatré og pappamassi og í timburframleiðslu.[13] Það er einnig frábært "tonewood", og er notað í marga vandaðri "acoustic" gítara og fiðlur. Hægt er að gera "spruce gum" úr safanum.[10] Greinar með barri eru notaðar til að gera grenibjór. Einnig er gerður úr því "grenibúðingur".
Brúngreni er héraðstré Nova Scotia.[3]
Eins og flest tré, eru ýmis skordýr sem leggjast á það. Aðal skaðvaldurinn er "spruce budworm" (nokkrar tegundir af ættkvíslinni Choristoneura, en sérstaklega Choristoneura fumiferana), þó er hann meira vandamál í hvítgreni og balsamþin.[14][15] Annað sem hefur hrjáð brúngreni er aukning súrs regns og núverandi loftslagsbreytingar.[16]
Brúngreni, vísindaheiti Picea rubens, er tegund af greni ættuðu úr austurhluta Norður Ameríku, frá austur Quebec til Nova Scotia, og frá New England suður til Adirondack-fjöllum og Appalasíu-fjöllum til vestur Norður-Karólínu.
Þessi tegund gengur undir fjölda nafna á ensku; red spruce, yellow spruce, West Virginia spruce, eastern spruce, og he-balsam (sjá Abies fraseri; "she-balsam").