Skúmur (fræðiheiti: Catharacta skua) er fugl af kjóaætt. Skúmurinn tilheyrir ættbálki strandfugla (fjörunga) og er stór, dökkleitur sjófugl, sem minnir töluvert á ránfugl. Skúmurinn er sjófugl á norðurhveli jarðar sem verpir á Íslandi, Færeyjum, Skotlandi, Noregi og Svalbarða.