dcsimg
Image of Abies forrestii var. georgei (Orr) Farjon
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Forrest's Fir

Abies forrestii Coltm.-Rog.

Abies forrestii ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Abies forrestii er sígrænt tré af þallarætt. Hann er einlendur í Kína. Hann var nefndur eftir grasafræðingnum George Forrest (1873-1932) sem uppgötvaði tegundina í Yunnan.

Lýsing

Abies forrestii getur náð 20 metra hæð. Börkurinn er dökkgrár og flettist af. Sprotarnir eru hærðir, rauðbrúnir tilbrúnir, og dökkna með aldri, Eftir tvö eða þrjú ár eru þeir orðnir dökkgráir. Brumin eru kvoðuborin, kúlu- til egglaga.[2] Barrnálarnar raðast eins og kambur á greinunum, 1,5 til 4, oftast þó 2 til 3 sm langar og 2 til 2,5 mm breiðar. Undir nálunum eru tvær breiðar loftaugarákir, og á jaðrinum eru kvoðurásir.[2] Hann blómgast í maí. Könglarnir eru 7 til 12 sm langir og 3,5 til 6 breiðir, sívalir eða sljótt-sívalir. Óþroskaðir eru þeir dökk fjólublábrúnir til svarbrúnir. Fræin eru um 1 sm löng, með ljósbrúnum til rauðbrúnum, breiðfleyglaga væng. Fræið þroskast í október til nóvember.[2]

Útbreiðsla

Abies forrestii vex í vestur Kína (suðvestur Sichuan, austurhluta Xizang og norðvestur Yunnan).[2]

Hann kemur fyrir í fjöllum í 2500 til 4200 metra hæð, í svölu og röku loftslagi með 1000 til 2000 mm úrkomu. Abies forrestii er þar oft sú tegund sem vex upp að trjálínu, en er þar einnig í bland við Picea likiangensis, Larix potaninii og Tsuga dumosa, neðar vex hann með lauftrjám eins og Betula albosinensis, hlyn (Acer) og reyni (Sorbus).[3]

Flokkun

Abies forrestii er í undirættkvíslinni Pseudopicea og þar í deildinni Delavayianae. Honum var gefið nafnið 1919 af Charles Coltman-Rogers í Gardeners’ Chronicle.[2] Á sama ári, nokkrum mánuðum síðar var honum lýst undir sama nafni af William Grant Craib.[4] Abies forrestii var áður talinn sem afbrigði af (Abies delavayi) sem hann líkist: Abies delavayi var. forrestii (Coltm.-Rog.) A.B.Jacks.

Afbrigði

Abies forrestii skiftist í eftirfarandi afbrigði:[5]

  • Abies forrestii var. chengii (Rushforth) Silba. samnefni Abies chengii [5]Rushforth
  • Abies forrestii var. ferreana (Bordères et Gaussen) Farjon et Silba. Samnefni eru Abies chayuensis W.C.Cheng et L.K.Fu, Abies ferreana Bordères et Gaussen, Abies rolii Bordères et Gaussen og Abies yuana Bordères et Gaussen
  • Abies forrestii var. georgei (Orr) Farjon. samnefni Abies georgei Orr
  • Abies forrestii var. smithii R.Vig. et Gaussen

Tilvísanir

  1. Zhang, D.; Katsuki, T. & Rushforth, K. (2013). "Abies forrestii". The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T42283A2969622. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T42283A2969622.en. Retrieved 16 December 2017.
  2. 2,0 2,1 2,2 2,3 2,4 Liguo Fu, Nan Li, Thomas S. Elias, Robert R. Mill: Abies. In: Wu Zheng-yi, Peter H. Raven (Hrsg.): Flora of China. Volume 4: Cycadaceae through Fagaceae. Science Press/Missouri Botanical Garden Press, Beijing/St. Louis 1999, ISBN 0-915279-70-3, S. 11 (englisch). online.
  3. Christopher J. Earle. „Abies forrestii“. The Gymnosperm Database (englisch). Sótt 14. january 2011.
  4. „Abies forrestii“. Germplasm Resources Information Network (english). Sótt 14. janúar 2011.
  5. 5,0 5,1 „Abies forrestii“. The Plant List (english). Sótt 14. janúar 2011.

Heimildir

  • Christopher J. Earle. „Abies forrestii“. The Gymnosperm Database (english). Sótt 14. Januar 2011.
  • Liguo Fu, Nan Li, Thomas S. Elias, Robert R. Mill: Abies. In: Wu Zheng-yi, Peter H. Raven (Hrsg.): Flora of China. Volume 4: Cycadaceae through Fagaceae. Science Press/Missouri Botanical Garden Press, Beijing/St. Louis 1999, ISBN 0-915279-70-3, S. 11 (englisch). online.
  • Gordon Cheers (Hrsg.): Botanica. Das ABC der Pflanzen. 10.000 Arten in Text und Bild. Könemann, Köln 2003, ISBN 3-8331-1600-5.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Abies forrestii: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Abies forrestii er sígrænt tré af þallarætt. Hann er einlendur í Kína. Hann var nefndur eftir grasafræðingnum George Forrest (1873-1932) sem uppgötvaði tegundina í Yunnan.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS