Gullsmári, eða Trifolium aureum,[2][3][2][4] er tegund af smára sem vex um mestalla Evrasíu.
Gullsmári er smávaxin, upprétt tvíær jurt, 10 til 30 sm há. Eins og allir smárar er hann með blöðin skift í þrjú smáblöð, sem eru 15 til 25 mm löng og 6 til 9 mm breið. Gul blómin eru í smáum, aflangt rúnnuðum blómskipunum 12 til 20 mm í þvermál, á enda stönguls. Eftir því sem þau eldast, verða blómin brún og pappírskennd. Fræbelgurinn er yfirleitt með tvö fræ.
Hinn náskyldi Engjasmári (Trifolium campestre) er áþekkur, en lægri, breiðari, og með smærri blöð og blóm. Mið smáblaðið á honum er líka á stuttum legg.
Gullsmári er algengur í Evrópu, og vex vel í snauðum óröskuðum jarðvegi. Þó að hann hafi líklega gott næringargildi, þá eru fjölærar jurtir hentugri sem beitarplöntur.
Trifolium aureum er er upprunalegur um Evrópu (í Rússlandi er það líka norður Kákasus og vestur Síbería; á Spáni eingöngu í norðaustri; og í Evrópuhluta Úkraínu, líka Krímskagi); vestur og norður Asía og Miðausturlönd (í Armeníu; Azerbaijan; Georgíu; norður Íran; Líbanon; og Tyrkland); og Afríka (eingöngu Kanaríeyjar).[2]
Trifolium aureum er víða orðinn ílendur í Norður Ameríku:[2] hann var fyrst fluttur inn til U.S. (í Pennsylvania) um 1800,[heimild vantar] þar sem hann finnst í vestur (jafnvel norður til Alaska) og austur héruðum landsins, en ekki því miðju og ekki í mestöllum suður hðéruðunum.[4] Hann finnst nú einig í Kanada í öllum suðurhéruðunum (Manitoba þó hugsanlega undanskilið).[4]
Gullsmári, eða Trifolium aureum, er tegund af smára sem vex um mestalla Evrasíu.