dcsimg

Wuchang-Leirslabbi ( islandais )

fourni par wikipedia IS

Wuchang-Leirslabbi (Megalobrama amblycephala) er tegund af ferskvatnsfisk af Karpaætt innfædd í Wuhcang-héraði í ánni Yangtze sem rennur í gegnum meginland Kína.

Fiskinn er að finna í Yuli-vatni og Newshan-vatni sem er aðeins 256 km2 stórt og er tangi út af Liangzi-vatni.

Tegundin lifir í ferskvatni á 5-20 m dýpi og vatnið er 10°C - 20°C. Tegundin er mikilvægur eldisfiskur og árið 2012 var heildarafli Wuchang-Leirslabba í 12.sæti yfir lista yfir mikilvægustu fisktegundir í fiskeldi, með heildarafla upp á 710 þúsund tonn og verðmæti upp á rúmlega 1,16 milljarð dollara.

Wuchang-Leirslabbastofninn hefur farið minnkandi vegna ofveiða og minni eldisframleiðslugetu vegna stíflna til vatnsaflsvirkjunnar. Eins og staðan er nú er talið að tegundin sé flokkuð í ,,Lítið áhyggjuefni” vegna þess að tegundin er strjálbýl, miðað við rannsóknir gerðar árið 2011 sem eru á rauðum lista IUCN yfir lífverur í útrýmingarhættu. Fylgjast þarf með stofninum og rannsaka aftur ef þekktar ógnir hafa meiri áhrif en talið er. Engar staðfestar upplýsingar eru um stærð stofnsins.

Útlit

Höfuðið er lítið og stutt en búkur hár og grannur. Munnur er skásettur og tennurnar tálknboga. Grár á bakinu, með svartar lóðréttar strípur og silfurhvítur á maganum, allir uggarnir eru grængráir.

Stærstu Wuchang-Leirslabbar sem vitað er um hafa verið um 2 metrar á lengd og vigta um 3 kg.

Fæða

Villtur Wuchang-Leirslabbi á lirfustigi fæðist aðallega á dýrasvifi eins og flóm t.d. krabbaflóm. Á fullorðinsstigi borðar hann nokkrar tegundir vatnagrasa. Munnur þeirra er lítill og vegna þess er geta þeirra til fæðuöflunar mikið minni en hjá t.d. vatnakarpa. Tegundin nær sér í fæði á litlu dýpi eða miðsvæðis í vötnum, nálægt árbökkum, eða í skurðum.

Fæði eldisfiska er misjöfn eftir eldi en er aðalega fóður úr hrísgrjónum og hveitikornum, á því fæði getur Wuchang-Leirslabbi þyngst frá lirfustigi í allt að 500 g á 10 mánuðum.

Fiskarnir hafa einnig verið aldnir á soya-baunum, það hefur sýnt góð viðbrögð til stækkunar.

Eldi á Íslandi

Wuchang-Leirslabbi myndi líklega ekki henta sérstaklega vel til eldis á Íslandi vegna þess að hann byrjar að deyja þegar hitastig vatnsins fer niður fyrir 0,5°C eða yfir 40°C, á Íslandi fer hitastig vatna oft undir 0,5°C að vetrarlagi.

licence
cc-by-sa-3.0
droit d’auteur
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visiter la source
site partenaire
wikipedia IS

Wuchang-Leirslabbi: Brief Summary ( islandais )