Tírólamerla (fræðiheiti: Parvoplaca tiroliensis) er tegund fléttna af glæðuætt (Teloschistaceae). Hún finnst meðal annars á Íslandi þar sem hún er algeng um allt land en er mest áberandi á hálendinu.[1]
Tírólamerla heitir eftir Tirol í Austurríki. Íslenska nafn hennar er dregið beint af latneska heiti hennar Parvoplaca tiroliensis.[1]
Tírólamerla er hrúðurflétta með lítt áberandi grátt þal og ólífugrænar eða gular askhirslur með skærgulum börmum.[1] Hún vex á mosum, sinuleifum eða kvistum.[1]
Átta gró eru í hverjum aski. Gróin eru tvíhólfa með þykkum millivegg, oddbaugótt eða sporbaugótt, 12-18 x 6-9,5 µm að stærð.[1]
Tírólamerla inniheldur gula litarefnið parietín eins og aðrar fléttur af glæðuætt.[1]
Þalsvörun tírólamerlu er K+ vínrauð, C-, KC- og P-.[1]
Tírólamerla (fræðiheiti: Parvoplaca tiroliensis) er tegund fléttna af glæðuætt (Teloschistaceae). Hún finnst meðal annars á Íslandi þar sem hún er algeng um allt land en er mest áberandi á hálendinu.
Caloplaca tiroliensis je porost[1], co go ôpisoł Zahlbr. Caloplaca tiroliensis nŏleży do zorty 'Caloplaca' i familije Teloschistaceae.[2][3]
Caloplaca tiroliensis je porost, co go ôpisoł Zahlbr. Caloplaca tiroliensis nŏleży do zorty 'Caloplaca' i familije Teloschistaceae.