Höfrungar eða Höfrungaætt (fræðiheiti: Delphinidae) eru ein af fimm ættum tannhvala. Flestar tegundir höfrunga eru tiltölulega litlir hvalir, allt niður í 1,2 metrar á lengd. Stærsta höfrungategundin, háhyrningur, verður þó jafnvel yfir níu metrar á lengd og um tíu tonn. Höfrungar lifa aðallega á uppsjávarfiski og smokkum sem lifa ofarlega í sjó. Þeir ferðast um í vöðum og hafa samvinnu um veiðar.
Kínverski vatnahöfrungurinn (l. Lipotes vexillifer) sem átti heimkynni sín í Jangtse-fljótinu í Kína var talinn útdauður árið 2006.