Hvolflaukur (fræðiheiti: Allium cernuum) er fjölær laukplanta sem vex í þurru skóglendi, klettum og sléttum. Hann vex í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, þar á meðal í Appalachiafjöll frá Alabama til New York, Great Lakes Region, Ohio og Tennessee árdölum, Ozarks í Arkansas og Missouri, og Klettafjöllum og Cascade fjöllum í vestur-bandaríkjunum, frá Mexíkó til Washington ríkis. Hann hefur ekki fundist í California, Nevada, Florida, Louisiana, Mississippi, New Jersey, Delaware, New England, eða mestöllum Sléttunum miklu. Í Kanada, vex hann frá Ontario til British Columbia.[1][2][3][4][5]
Allium cernuum er með beran , grannan keilulaga lauk sem mjókkar í nokkur kjallaga , graslík blöð, 2 til 4mm breið.
Hver fullþroska laukur er með stakan blómstrandi blómstöngul, sem endar í lútandi blómskipun með hvítum eða bleikum blómum. Blómin koma í júlí eða ágúst (júní-júlí á Íslandi). Þau eru bjöllulaga, um 5 mm í þvermál, bleik eða hvít með gulum frjókornum og gulum fræflum. Þessi tegund myndar ekki æxlilauka í blómskipuninni.
Blómin þroskast í kúlulaga, "crested" fræhylki sem síðar opnast og sýna gljáandi dökk fræin.[1][6][7][8][9][10][11][12]
Allium cernuum er ætur og er með sterkt laukbragð, og hefur oft verið notaður til matar.[13] Hann er ræktaður víða vegna blómfegurðar og harðgeris.[14]
Hvolflaukur (fræðiheiti: Allium cernuum) er fjölær laukplanta sem vex í þurru skóglendi, klettum og sléttum. Hann vex í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, þar á meðal í Appalachiafjöll frá Alabama til New York, Great Lakes Region, Ohio og Tennessee árdölum, Ozarks í Arkansas og Missouri, og Klettafjöllum og Cascade fjöllum í vestur-bandaríkjunum, frá Mexíkó til Washington ríkis. Hann hefur ekki fundist í California, Nevada, Florida, Louisiana, Mississippi, New Jersey, Delaware, New England, eða mestöllum Sléttunum miklu. Í Kanada, vex hann frá Ontario til British Columbia.