Jöklamerla (fræðiheiti: Caloplaca nivalis) er tegund fléttna af glæðuætt (Teloschistaceae). Jöklamerla finnst meðal annars á Íslandi þar sem hún vex nær alltaf á mosum yfir klettum, sérstaklega á sótmosa.[1]
Jöklamerla er hrúðurflétta með hvítleitt eða grátt þal og gular askhirslur sem eru 0,3-0,8 mm í þvermál.[1]
Átta gró eru í hverjum aski. Gróin eru glær, einhólfa eða tvíhólfa og sérstaklega mjó, 23-34 x 4-6,5 µm að stærð.[1] Jöklamerla líkist þúfumerlu og tírólamerlu í útliti en öruggast er að greina hana frá þeim á gróunum.[1]
Fléttur af glæðuætt innihalda yfirleitt gula litarefnið parietín en þó eru ekki þekkt nein fléttuefni í jöklamerlu.[1]
Þalsvörun jöklamerlu er K- fyrir þalið en askhirslur eru K+ vínrauðar, C-, KC- og P-.[1]
Jöklamerla (fræðiheiti: Caloplaca nivalis) er tegund fléttna af glæðuætt (Teloschistaceae). Jöklamerla finnst meðal annars á Íslandi þar sem hún vex nær alltaf á mosum yfir klettum, sérstaklega á sótmosa.